Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011

Elskast augu

Augun þín
svo yndisleg
af ást mér vísa
unaðs veg.
Orðin öll
þín augu tjá.
Tilfinningar
tærar sjá
elskendur
við ástar fund.
Þegar elskast augu
er eilíf stund.

jgr


Gjöf

Manni hverjum
að muna hollt er
hve sælt er að gefa
af sjálfum sér.

jgr


Spékoppur

Spékoppurinn
speglar kæti.
Hann á í gleðinni
hæsta sæti.
Hann er í andanum
yndislegur:
Gleðinnar ljómi
er lífsins vegur.

jgr


Ljósaleit

Þú bjartsýni brýnir,
þú býður mér far:
Nú ljósanna leitum
því lífið er þar.

jgr

(Ort til vinar míns, Guðjóns Sigurðssonar, formanns MND félagsins. Hann er okkur öllum ómetanleg fyrirmynd.)


Bros

Lítið barn
um litla kvos
leiddi pabba
sinn í hendi.
Sælan ljúf
og lítið bros
læddi í sál hans
blómavendi.

jgr


Það er vor

Hvar ertu nú, vorblómið væna?
vorið mitt ljúfa og græna.
Beið ég þín lengi, svo lengi
leikandi á vetrarins strengi.
Komdu og sögurnar segðu
með suðrænum leikandi vindum.
Birtuna í brjóstið mitt leggðu
með blíðlegum sumarsins myndum.
Hvar ertu nú, vorið mitt væna,
vorið mitt ljúfa og græna?
Bíddu ekki boðanna lengur
brostinn er vetrarins strengur.

jgr


Morgunstjarna

Morgunstjarna á himni, mild og skær,
máttur hennar bjarta tíma gefur.
Í stjörnuskini lítill blundar bær,
bærinn sem við fjöruborðið sefur.
Og alda hafsins blíð við Lækinn leikur
er liðast upp frá húsum morgunreykur.

Þá rennur dagur upp, svo hreinn og hlýr,
í Hafnarfirði að morgni nýrrar aldar.
Lágreist byggðin dreifð og bærinn nýr,
ból sem magnar vonir, þúsundfaldar.
Og skipin vagga rótt í vari fjarðar.
Svo vært og rótt í faðmi móður Jarðar.

Og nú, er liðið hafa hundrað ár,
vor hugur reikar fram um næstu aldir.
Sól á Hamri, himinninn svo blár,
og Hafnarfjarðar gæfubrunnar valdir:
Já, morgunstjarnan allt til verka vekur;
völd af nóttu lífsins birta tekur.

jgr

Ljóðið sendi ég í samkeppni um afmælisljóð Hafnarfjarðarbæjar í tilefni af 100 ára kaupstaðarafmælinu 2008. Hér er það svolítið stytt frá uppaflegri útgáfu og örlitlu verið hnikað til. Ljóðið "tapaði" í keppninni en mér þykir samt ósköp vænt um það ;0)

Heiti ljóðs og leiðarstef: Árið 1907 samþykkti góðtemplarastúkan Morgunstjarnan áskorun til hreppsnefndar Garðahrepps þess efnis að efnt yrði til almenns fundar skattgreiðenda um hvort ekki ætti að skora á Alþingi að veita Hafnarfirði kaupstaðarréttindi. Hreppsnefndin ákvað að verða við þeirri áskorun og á þeim fundi var samþykkt að skora á Alþingi að veita bænum réttindin (sjá Sögu Hafnarfjarðar I, 49-51). Sú áskorun reyndist lokahnykkurinn í áralangri sjálfstæðisbaráttu bæjarbúa. Morgunstjarnan er hér jafnframt þema í merkingunni dagrenning, eins og sjá má í hverju og einu erinda ljóðsins og bendir þannig til þess að kaupstaðurinn Hafnarfjörður sé enn við morgunsár sögu sinnar. Að síðustu hefur Morgunstjarnan kristilega skírskotun og er þar með samofin sögu íslensku þjóðarinnar frá kristnitökunni árið 1000: Hundrað ára afmæli Hafnarfjarðarkaupstaðar 2008 í kjölfar þúsund ára afmælis kristni á Íslandi árið 2000. Rétt er í því samhengi að minna á að talið er að fyrsta lútherska kirkjan hafi einmitt verið reist í Hafnarfirði og stendur minnisvarði um hana við smábátahöfnina auk þess sem kirkja stóð á Hvaleyri í kaþólskum sið.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband